Birta sögulegar hagtölur um hvalveiðar

Deila:

Hagtölur um hvalveiðar við Ísland eru nú birtar fyrir tímabilið 1863 til 2018 undir sögulegum hagtölum hjá Hagstofu Íslands. Í gögnunum má m.a. sjá hvernig hvalveiðar hafa staðið yfir með hléum, allt frá upphafi veiða og fram til dagsins í dag.

Tölur um útflutt magn hvalafurða eru einnig birtar fyrir tímabilið. Útflutningurinn er brotinn niður eftir afurðum. Þannig má til dæmis sjá að útflutningur á hvaltönnum og skíðum stóð með hléum frá árinu 1950 til 1973. Tennurnar voru úr búrhval, sem var eini stóri tannhvalurinn sem veiddur var á sínum tíma, en hætt var að veiða hann á áttunda áratugnum. Verðmæti þessara útflutningsafurða varð mest á þessum tíma um 230.000 krónur að verðmæti hvers árs.

Gögnin eru einnig hluti af sjávarútvegstölfræði, frá árinu 2000. Þar koma fram tölur um útflutningsverðmæti, til viðbótar við útflutt magn.
Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

Sögulegar hagtölur

 

Deila: