Snúið að veiða þorsk þessa dagana

Deila:

Ísfisktogarinn Viðey RE kom til Reykjavíkur í gærmorgun úr hefðbundinni veiðiferð. Vegna svokallaðs páskastopps, en svo nefnist sá tími að stórum svæðum, aðallega við sunnan- og vestanvert landið, er lokað vegna hrygningar þorsksins, hefur reynst snúið að veiða þorsk á togaraslóð. Við því var brugðist að þessu sinni með því að ljúka veiðiferðinni á Vestfjarðamiðum.

,,Við byrjuðum á að veiða gullkarfa og ufsa á Fjöllunum. Það var vitlaust veður á suðvesturmiðum og það spáði verra veðri og því fórum við beint norður á Vestfjarðamið,“ segir Jóhannes Ellert Eiríksson, skipstjóri á Viðey í samtali við heimasíðu HB Granda. Hann segir að þar hafi verið blíðuveður.

,,Við fengum þorsk í kantinum vestur af Halanum og á Strandagrunni. Aflabrögðin voru í lagi en það verður enginn kraftur í veiðinni fyrr en í júní eftir að þorskurinn er genginn út af grunnunum. Hið sama á við um miðin fyrir sunnan. Þorskurinn er allur uppi á grunnunum á stóru svæði sem nú er lokað. Það verður opnað fyrir veiðum næst komandi. sunnudag og það verður fróðlegt að sjá hvað gerist þá,“ sagði Jóhannes Ellert Eiríksson.

Deila: