Hvalveiðar geti fækkað haust- og vetrarferðamönnum

Deila:

Viðbúið er að hvalveiðar sem hafnar eru á ný eftir þriggja ára hlé gætu dregið úr haust- og vetrarferðamennskunni. Þetta segir  Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri sem hefur fengið töluvert af tölvupóstum utan úr heimi þar sem veiðarnar eru gagnrýndar. Bandaríski fréttamiðillinn CNN fjallaði um  helgina um hvalveiðar Íslendinga og gagnrýni á þær. 

„Þetta er ekki gott fyrir ferðaþjónustuna. Þetta dregur alveg ábyggilega úr vilja einhverra til að fara til Íslands. Það er engin spurning,“ segir Skarphéðinn í samtali á ruv.is 

Heldurðu að einhverjir hætti við ferðir?

„Mér finnst ekki sennilegt að fólk hætti við ferð sem það er búið að kaupa og búið að panta gistingu. En þó getur verið að það séu einhverjir. En það sem er kannski frekar áhyggjuefni í mínum huga eru ferðamenn sem eru að plana Íslandsferð. Þetta getur valdið því að þeir falla frá því. Það eru þá ferðamenn sem annars væru að koma hingað í haust eða vetur. Það skiptir talsverður máli að fá þá,“ segir Skarphéðinn.

Hefur þú fengið einhver viðbrögð frá útlendingum?

„Já, ég hef fengið dálítið af tölvupóstum þar sem fólk utan úr heimi er að senda mér athugasemdir sínar. Það er dálítið um þetta. Það er alveg skýr vilji þeirra sem eru að senda þá tölvupósta að við eigum að hætta þessu,“ segir Skarphéðinn.

Deila: