Uppsagnir hjá HB Granda á Vopnfirði

Deila:

11 starfsmönnum Granda hf. í frystihúsi félagsins á Vopnafirði sagt upp störfum í gær. Áður hafði þremur starfsmönnum verið sagt upp og loks eru tveir starfsmenn að hætta af öðrum ástæðum og verður ekki ráðið í stað þeirra.  „Fækkun starfa á Vopnafirði eru því 16 störf á stuttum tíma sem myndi jafngilda því að um 5.600 störf hefðu glatast á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í frétt frá Afli stéttarfélagi.

Samkvæmt því sem AFL kemst næst eru flestir þeirra sem sagt var upp, af erlendum uppruna og búsettir á Bakkafirði en þar hefur allri fiskvinnslu verið hætt og íbúar hafa sótt vinnu til Vopnafjarðar.

„Ennfremur herma fréttir að frekari uppbyggingu frystihússins á Vopnafirði sé hætt.

Þar sem innan við 100 starfsmenn eru starfandi í frystihúsinu sjálfu mun AFL Starfsgreinafélag hafa samband við Vinnumálastofnun og kanna hvort lög um fjöldauppsagnir eigi við.

Nýir eigendur tóku við stjórn Granda hf. á aðalfundi félagsins í vor.

Stjórnendur hjá HB Granda höfðu samband við AFL undir kvöld og mótmæltu því að verið væri að stöðva uppbyggingu frystihússins á Vopnafirði en sögðu að unnið væri að breytingum á fyrirkomulagi á vinnslu á bolfiski og rekstri hússins á milli uppsjávarvertíða,“ í frétt Afls

 

Deila: