Fiskurinn hefur nóg að éta

Deila:

Vestamannaeyjatogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Vestmannaeyjum í gær eftir að hafa bæði verið aðeins tvo sólarhringa að veiðum. Á vef Síldarvinnslunnar segir Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey að veiðin hafi verið fín.

„Við vorum á réttu róli, fyrstir eftir brælu og þetta gekk nánast eins og í sögu. Við byrjuðum á Víkinni, héldum síðan í Meðallandsbugtina og kláruðum á Ingólfshöfða. Aflinn var mest þorskur og ýsa,“ segir Birgir Þór.

Undir þetta tekur Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi í frásögninni á svn.is. „Við byrjuðum í þorski á Víkinni, síðan var veidd ýsa á Ingólfshöfða og þá haldið á ný á Víkina og þar tekinn þorskur, ýsa og dálítill ufsi. Þarna er nóg af fiski þó ufsann vanti sárlega. Fiskurinn er þarna í loðnunni og hefur nóg að éta,“ segir Jón.

 

Deila: