Mervin King heimsótti HB Granda

Deila:

Mervyn King, fyrrverandi bankastjóri Englandsbanka, heimsótti HB Granda nýverið en hann er hér á landi í heimsókn í boði Samtaka sparifjáreigenda og flutti hann erindi á þeirra vegum í Háskóla Íslands um hagstjórn á óvissutímum.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda tók á móti Mervyn og konu hans Barböru King á Norðurgarði og bauð þeim um borð í Akurey RE sem er einn nýrra ísfisktogara félagsins. Þá var fiskvinnsla í landi einnig skoðuð og vakti það athygli Mervyn King hversu vel félagið er búið hátæknibúnaði bæði til veiða og vinnslu. Guðmundur Kristjánsson kynnti því næst fyrir gestum rekstur HB Granda, umhverfi íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja, fiskveiðikerfið og sögu þess hvernig Íslendingar hafa nýtt auðlindir sjávar. Að því búnu var boðið til hádegisverðar þar sem rædd var sjálfbær nýting auðlinda, alþjóðleg efnahagsmál og þróun fjármálakerfisins.

Mervyn King er einn af virtustu hagfræðingum samtímans. Hann varð aðalhagfræðingur Englandsbanka 1991 og bankastjóri frá 2003 til 2013. Hann var því á vaktinni þegar fjármálakerfi heimsins riðaði til falls veturinn 2008-2009 og var einn áhrifamesti seðlabankastjóri Evrópu þegar glímt var við afleiðingar kreppunnar. Frá því að hann hætti sem bankastjóri hefur hann verið eftirsóttur fyrirlesari um allan heim.

 

Deila: