„Byrjuðu í Ræsinu“

Deila:

Lokið var við að landa kolmunna úr Venusi NS á Vopnafirði í um helgina og er skipið nú komið til Akureyrar þar sem það fer í slipp. Að sögn Theódórs Þórðarsonar skipstjóra í samtali á heimasíðu HB Granda, var skipið síðast með 2.740 tonna afla eftir átta til níu daga á veiðum.

,,Kolmunnaafli hefur verið að dragast saman síðustu daga og vikur. Við hófum veiðar í svokölluðu Ræsi suðvestan við Færeyjar en enduðum túrinn austan við eyjarnar. Aflinn var hvergi mikill en við náðum þó að fylla fyrir heimferð,“ sagði Theódór en að hans sögn er slipptakan á Akureyri hefðbundin og á skipið að vera klárt til veiða að nýju 10. til 12. júní nk.

Víkingur AK er enn að kolmunnaveiðum og að sögn Hjalta Einarssonar skipstjóra er Víkingur nú eina íslenska skipið á miðunum.

,,Kolmunnaveiðin er ósköp döpur um þessar mundir eða innan við tíu tonn á togtímann. Skipum hefur mikið fækkað á miðunum. Rússarnir eru flestir búnir með kvóta sína og í dag eru bara fimm færeysk skip og eitt rússneskt að veiðum á svæðinu auk okkar,“ sagði Hjalti Einarsson.

Deila: