Ný Cleopatra 32 til neta og makrílveiða afgreidd til Hjaltlandseyja

Deila:

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna á dögunum nýjan Cleopatra bát til Whalsay á Hjaltlandseyjum. Að útgerðinni stendur Jimmy Hutchinson útgerðarmaður og synir hans tveir.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Endeavour.  Báturinn er 9,6 brúttótonn.  Endeavour er af gerðinni Cleopatra 32.  Þetta er fyrsti báturinn sem Trefjar afgreiða af þessari gerð.  Skrokkur bátsins var upphaflega hannaður fyrir vinnubáta sem notaðir eru við olíuleit sem Trefjar hafa selt um árabil með ágætis árangri.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan L086TIM tengd ZF 286IV gír.  Rafstöð 5.5 kW frá Scam/Kubota. Siglingatæki koma frá Furuno.  Báturinn er með uppsetta Maxsea skipstjórnartölvu.

Hann einnig útbúin með vökvadrifinni bógskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til Makrílveiða og netaveiða.  Makrílbúnaður kemur frá DNG og Trefjum.  Netabúnaður er frá Hydema. Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 12 stk 380 lítra kör í lest.  Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Whalsay allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: