Mikil ánægja með skipið

Deila:

Hin nýja Vestmannaey, sem er í smíðum hjá skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi, fór í prufusiglingu hinn 27. júní sl.. Hinn 5. júlí fóru síðan fram veiðarfæraprófanir en þá var allur búnaður sem tengist veiðarfærum um borð í skipinu prófaður.

Guðmundur Alfreðsson, útgerðarstjóri Bergs-Hugins, er í Noregi og segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að siglingin og veiðarfæraprófanirnar hafi gengið vel í alla staði og ríki mikil ánægja með skipið.

Gert er ráð fyrir að Vestmannaey verði afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar, síðar í þessari viku.

Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey, er einnig í smíðum hjá Vard í Aukra og er ráðgert að það verði sjósett í ágústmánuði næstkomandi. Skipin eru tæplega 29 metrar að lengd og 12 metra breið og há.

 

Deila: