Bilaður bátur dreginn í land

Deila:

Bilun kom upp í stýrisbúnaði 15 tonna línubáts norður af Hornströndum um kvöldmatarleytið í gær. Áhöfnin átti því erfitt með að stýra bátnum, sem gerður er út frá Bolungarvík, og var því kallað eftir aðstoð björgunarsveita samkvæmt frétt frá Landsbjörgu.

Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði hélt út til móts við línubátinn sem sigldi fyrir eigin vélarafli til móts við björgunarskipið.

Bátarnir mættust í Aðalvík um klukkan hálf níu í gærkvöld og var línubáturinn kominn í tog dreginn til Bolungarvíkur. Engin slys urðu á fólki.

Deila: