Tilkynna ber áætlaðar veiða á makríl utan landhelgi
Fiskistofa vekur athygli útgerða á að sé ætlunin að veiða makríl utan landhelgi á svæðum sem heyra undir Norðuaustur Atlantshafs Fiskveiðiráðið (NEAFC) er nauðsynlegt að tilkynna það til Fiskistofu með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is án tafar.
Fiskistofa þarf að tilkynna til NEAFC um þau íslensk skip sem er heimilt að veiða makríl á stöðum eins og “síldarsmugunni” ef veiðarnar eiga að teljast löglegar samkvæmt samþykktum NEAFC.
Áður en makríllinn var hlutdeildasettur annaðist Fiskistofa þessa skráningu við útgáfu veiðileyfis fyrir viðkomandi skip. Nú þegar ekki eru gefin út sérstök makrílveiðileyfi er nauðsynlegt að tilkynning um fyrirhugaðar veiðar á alþjóðlegu hafsvæði berist Fiskistofu.