Hörpuskel með rísottó og spínati
Nú fáum við okkur veislumat. Hörpudisk með rísottó, spínati og brúnuðu smjöri. Þetta er kjörinn réttur fyrir hvers kyns hátíðleg tækifæri, eða rómantískan kvöldverð fyrir pör á öllum aldri, sérstaklega þegar farið er að rökkva að hausti. Kveikja upp í arninum, kveikja á kertum og setja ljúfa tónlist í græjurnar og njóta.
Innihald:
Parmesan rísottó:
- 1 msk smjör
- 1 hvítlauksgeiri, marinn
- 1 bolli rísottó grjón
- ½ bolli hvítvín
- 3 bollar kjúklingasoð
- ½ bolli parmesan ostur
Hörpudiskurinn:
- Msk matarolía
- 500 g stór hörpudiskur
Spínatið:
- 1 msk ólífuolía
- 1 hvítlauksgeiri, marinn
- 4 bollar af spínati
Brúnað smjör:
- 3 msk smjör
Aðferð:
- Rísottó: Bræðið smjörið á stórri pönnu á miðlungshita. Bæti hvítlauknum út á og mýkið. Bætið grjónunum út í og og smjörinu og hrærið vel saman. Bætið þá hvítvíninu á pönnuna og látið krauma aðeins. Þá er kjúklingasoðinu hellt yfir í smá skömmtum og hrærið vel í eftir hvern skammt. Látið síðan grjónin malla á pönnunni þar til þau verða mjúk og kremuð. Þá er ostinum hrært saman við grjónin. Saltið og piprið eftir smekk.
- Hörpudiskurinn:Þerrið hörpudiskinn mjög vel og steikið í matarolíu á snarpheitri pönnu. Steikið bitana í 2-3 mínútur á hvorri hlið, þannig að þeir verði gullnir að utan. Færið bitana síðan yfir á bréf til að láta mestu olíuna leka af þeim. Berið þá síðan fram með meðlætinu.
- Spínatið:Hitið ólífuolíuna á pönnu á miðlungshita. Bætið hvítlauknum út í og hrærið smávegis þar til laukurinn er orðinn gullinn. Bætið þá spínatinu út á og hrærið í þar til það er orðið mjúkt.
- Brúnað smjör:Setjið nokkrar matskeiðar af smjöri á hreina pönnu á meðalhita og hrærið uns það er orðið gullið og froðukennt. Hellið því þá í hitaþolna skál og kælið það smávegis niður. Hellið því síðan yfir hörpudiskinn á hrísgrjónabeði og spínati.
- Líklega er alveg óhætt að bera fram kælt hvítvín með þessum fína rétti.