Fjarðalax fær rekstrarleyfi á ný

Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Fjarðalax ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Patreksfirði og Tálknafirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vefsíðu stofnunarinnar þann 5. júlí sl. og var frestur til að skila inn athugasemdum til 2. ágúst 2019. Matvælastofnun bárust athugasemdir frá tveimur aðilum vegna tillögunnar.

Fjarðalax sótti um rekstrarleyfi fyrir 10.700 tonnum af laxi í Patreks- og Tálknafirði. Umsókn um rekstrarleyfi var móttekin 26. júlí 2016. Úttekt starfsstöðva hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Fjarðalax FE-1144 í Patreks- og Tálknafirði. Við gildistöku nýs rekstrarleyfis fellur rekstrarleyfi til bráðabirgða úr gildi.

Hámarkslífmassi eldisins í Patreks- og Tálknafirði mun ekki fara yfir 12.200 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat fjarðanna. Tekið var tillit til áhættumats Hafrannsóknarstofnunar við útgáfu rekstrarleyfisins. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar

Deila: