Inga Jóna ráðin fjármálastjóri Brims

Deila:

Inga Jóna Friðgeirsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Brims og sest í framkvæmdastjórn félagsins. Á verksviði fjármálastjóra eru fjárreiður félagsins, reikningshald, upplýsingatækni og skrifstofurekstur Brims.

Inga Jóna hóf störf hjá HB Granda 2013 sem forstöðumaður fiskþurrkunar og síðar forstöðumaður viðskiptaþróunar. Áður eða frá árinu 2004 starfaði hún sem framkvæmdastjóri Laugafisks og jafnframt sem framkvæmdastjóri hjá Brimi (nú Útgerðarfélag Reykjavíkur) frá 2007-2013.

Inga Jóna útskrifaðist með B.sc gráðu í alþjóðlegri markaðsfræði frá Tækniháskólanum árið 1998 en hafði áður lokið iðnrekstrarfræði frá sama skóla. Hún er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og diplóma af meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá EHÍ.

 

Deila: