Tveimur bjargað úr strönduðum báti

Deila:

Upp úr miðnætti i gær barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar neyðarkall frá 12 metra báti sem var strandaður rétt utan við Skála á sunnanverðu Langanesi. Tveir menn voru um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var þegar send á staðin ásamt björgunarbátum frá Þórshöfn og Bakkafirði og nærstöddum skipum. Þá voru björgunarsveitir frá Raufarhöfn, Þórshöfn og Húsavík sendar landleiðina á vettvang.

Um kl.0120 kom fiskibátur á svæðið en hann gat ekki athafnað sig á svæðinu. Þá var ágætis veður á svæðinu, bjart en nokkur sjór.

Björgunarbátur frá Bakkafirði kom á staðin um kl.0230 en ekki var talið ráðlegt að reyna björgun frá sjó sökum sjólags. Þá voru aðstæður til björgunar frá landi ekki góðar sökum aðstæðna en strandstaður var undir bjargi. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-EIR kom á vettvang um kl.0235 og rúmu korteri síðar var búið að bjarga báðum mönnunum um borð í þyrluna.

Aðstæður á vettvangi verða skoðað betur í dag með tilliti til björgunar á bátnum.

Sjá má myndband frá björguninni á slóðinni: https://youtu.be/pSuqWzg46as

 

 

Deila: