Hvalveiðibannið átti ekki stoð í lögum

Deila:

Í nýju áliti umboðsmanns Alþingis kemur fram að reglugerð Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um frestun upphafs hvalveiða hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar. Útgáfa og undirbúningur reglugerðarinnar samræmdist auk þess ekki kröfum um meðalhóf. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Svandís hefur brugðist við tíðindunum en færslu hennar í heild má sjá hér neðst í fréttinni. „Ég tek þessa niðurstöðu umboðsmanns alvarlega og þrátt fyrir að umboðsmaður beini ekki sérstökum tilmælum til mín þá hyggst ég beita mér fyrir breytingum þannig að þessi úreltu lög séu færð til nútímans.”

Fréttin í heild hljóðar svo:

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni vegna kvörtunar Hvals hf. um frestun upphafs hvalveiða síðastliðið sumar og látið í ljós álit sitt vegna málsins.

Í álitinu kemur m.a. fram að reglugerð um frestun upphafs hvalveiða hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar og að eins og atvikum var háttað hafi útgáfa og undirbúningur reglugerðarinnar ekki samrýmst kröfum um meðalhóf. Umboðsmaður beinir ekki sérstökum tilmælum til ráðuneytisins um úrbætur. Hann beinir því hins vegar til ráðuneytisins að hafa þau sjónarmið sem fram koma í álitinu í huga til framtíðar.

Umboðsmaður fellst á skýringar ráðuneytisins um að heimilt sé að líta til dýravelferðarsjónarmiða við setningu reglugerða á grundvelli laga um hvalveiðar. Hann bendir þó á að þegar lög um hvalveiðar voru sett árið 1949 hafi meginmarkmið þeirra verið verndun og viðhald hvalastofnsins. Þrátt fyrir aukna áherslu á velferð dýra, m.a. á vettvangi Alþjóðahvalveiðiráðsins, hafi lögunum hins vegar ekki verið breytt til samræmis við það.

Umboðsmaður óskaði í júlí sl. eftir upplýsingum, skýringum og gögnum vegna reglugerðar um tímabundna frestun á upphafi hvalveiða. Reglugerðin var sett í kjölfar birtingar eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyðum árið 2022 og álits fagráðs um velferð dýra.

Ný reglugerð tók gildi 1. september sl. sem var ætlað að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Með henni var m.a. brugðist við fyrrgreindum skýrslum Matvælastofnunar og fagráðs um velferð dýra auk skýrslu starfshóps um mat á leiðum til að fækka frávikum við veiðarnar sem var birt í lok ágúst sl.

Í ráðuneytinu stendur nú yfir endurskoðun á reglugerðum um hvalveiðar. Tekið verður mið af ábendingum umboðsmanns í þeirri vinnu.

Hér má finna gögn sem málið varða og voru send á milli embættisins og ráðuneytisins vegna fyrrgreindrar fyrirspurnar:

Deila: