Veiddu hluta úr breskri sprengju

Deila:

Hluti úr breskri sprengju sem notuð var í seinni heimsstyrjöldinni kom í veiðarfæri ísfisktogarans Bjargar EA 7 í gær er skipið var við veiðar á Rifsbanka, norður af Melrakkasléttu. Haft var samband við Landhelgisgæsluna sem staðfesti að brotið væri hluti af MARK XVII sprengju.

Frá þessu er greint á vef Samherja. Þar segir að stjórnendur skipsins hafi orðið varir við torkennilegan hlut í trollinu og hafi þeir því ákveðið að hífa.

„Við áttuðum okkur fljótlega á því að þetta væri hluti úr sprengju og settum okkur því í samband við Landhelgisgæsluna, sem ber að gera við slíkar aðstæður. Sérfræðingar þar úrskurðuðu strax að um væri að ræða hluta af MARK XVIII sprengju sem breski herinn beitti í síðari heimsstyrjöldinni. Við sendum Landhelgisgæslunni myndir af sprengjubrotinu og nákvæma staðsetningu á því hvar það kom í veiðarfærin,“ segir Árni Rúnar. „Það er annars ekkert grín að fá þessar gömlu sprengjur í veiðarfærin og um borð, lykilatriðið er hreyfa alls ekkert við þeim og allra síst að skila þeim aftur í hafið. Sem betur fer var þetta einungis hluti úr sprengju og engin hætta á ferðum. Við þurfum með öðrum orðum ekki að stíma í land, sem þarf að gera ef um er að ræða ósprungnar sprengjur.“

Sjá fréttina hér.

Myndin er af vef Samherja.

Deila: