Rólegt á halanum

Deila:

,,Við erum á leiðinni austur á Strandagrunn. Við höfum verið á Halanum en þar er allt tómt og ekkert að hafa. Strandagrunnið er óskrifað blað og við getum alveg eins reynt fyrir okkur þar eins og að hanga á Halamiðum upp á von og óvon,“ segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK samtali á heimasíðu Brims.

Akurey fór frá Reykjavík í hádeginu sl. föstudag og byrjaði áhöfnin á að veiða um 40 tonn af gullkarfa í Víkurálnum. Þaðan var kanturinn norður og austur með Vestfjörðum þræddur alla leiðina á Halamið.

,,Vestfjarðamið standa vart undir nafni um þessar mundir og það er sáralítið af fiski á Halanum svo dæmi séu nefnd. Við fórum reyndar í ágæta veiðiferð á Vestfjarðamið síðast á undan þessum túr. Við vorum með 160 til 170 tonn, mest þorsk, en þá munaði mest um tvo góða daga. Þannig eru Vestfjarðamið þessa dagana. Við fáum glennu af og til og góðan afla en þess á milli er aflinn lítill,“ segir Eiríkur.

Akurey var í allt sumar að veiðum fyrir norðan land og aflanum var fimm sinnum landað á Sauðárkróki á þeim tíma.

,,Sumarið var gott og við fengum fínan afla. Heimamið höfum við ekki stundað frá því í vor enda höfum við getað tekið karfaskammtinn í Víkurálnum á leiðinni norður á Vestfjarðamið,“ segir Eiríkur Jónsson en gert er ráð fyrir því að Akurey komi til hafnar í Reykjavík nk. fimmtudagsmorgun.

Deila: