Ný Cleopatra 36 til Tromsø

Deila:

Nú á dögunum afhenti Bátasmiðjan Trefjar nýjan Cleopatra bát til Tromsø í Noregi.

Kaupandi bátsins er West Atlantic AS.  Bjarni Sigurðsson Útgerðarmaður er framkvæmdastjóri West Atlantic. Sæmundur Hnappdal Magnússon er skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Åsta B.  Åsta B er af gerðinni Cleopatra 36, 11metra langur og mælist 14 brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hö tengd ZF V-gír.

Rafstöð af gerðinni Nanni 7.5kW.  Andveltigýro af gerðinni Quick er staðsettur í vélarrúmi.

Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno.  Olex skipstjórnartölva er um borð.
Báturinn er einnig útbúin vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til línuveiða.
Línuspil kemur frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 15 stk 380 lítra kör í lest.  Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: