Allir fari að lögum og reglum

Deila:

„Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vilja taka fram vegna umræðu um starfsemi Samherja hf. í Afríku, að það hefur ætíð verið afstaða samtakanna að allir félagsmenn skuli fara að lögum og eftir reglum. Gildir þá einu hvar viðkomandi starfsemi fer fram, á Íslandi eða í útlöndum.“

Svo segir í yfirlýsingu frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, sem Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS hefur sent frá sér. Þar segir ennfremur:

„Hvað varðar framkomnar ásakanir á hendur Samherja hf., þá eru þær í eðli sínu alvarlegar og það er fyrirtækisins að bregðast við þeim. Ljóst er að mál af þessu tagi getur haft áhrif á orðspor íslensks sjávarútvegs og stöðu á alþjóðlegum markaði. Því er brýnt að málið verði rannsakað og hið rétta komi fram. Það er allra hagur, ekki síst þeirra sem bornir eru þungum sökum.“

 

 

Deila: