Óvissa með mikilvæga markaði vegna innrásar Rússa í Úkraínu

Deila:

Gunnþór Ingvason Forstjóri Síldarvinnslunnar hf. hefur birt eftirfarandi pistil á heimasíðu félagsins vegna árásar Rússa á Úkraínu:

„Stríðsátökin í Úkraínu eru okkur öllum mikil harmtíðindi og er hugur okkar hjá fólkinu þar. Öll fordæmum við þær gegndarlausu árásir sem úkraínska þjóðin er að verða fyrir.

Úkraína hefur verið eitt mikilvægasta viðskiptaland Síldarvinnslunnar síðustu ár. Þangað seljum við síldar-, makríl- og loðnuafurðir í miklu magni. Síðustu ár hefur Úkraína verið með í kringum einn þriðja af útflutningi frosinna uppsjávarafurða og meira á árunum 2019 og 2020 þegar loðnubrestur var. Við höfum átt í umfangsmiklum viðskiptum þar í landi til margra ára og byggt þar upp gott og traust viðskiptasamband. Við eigum góða viðskiptavini þar og er hugur okkar hjá þeim og þeirra fólki.

Vegna stöðunnar sem komin er upp í Úkraínu ríkir nú umtalsverð óvissa um þróun þessa mikilvæga markaðar félagsins. Stjórnendur Síldarvinnslunnar fylgjast náið með ástandinu og þróun mála þar í landi. Tekið skal fram að eitt fyrsta verkefni félagsins, eftir að fregnir bárust af átökunum, var að snúa við skipi sem var á leið til Odessa. Þær vörur verða fluttar aftur til Íslands á meðan staðan verður metin.

Síldarvinnslan á útistandandi viðskiptakröfur upp á um 9 milljónir USD í Úkraínu. Auk þess hefur verið framleitt töluvert af loðnu sem selja á inn á þennan markað og fyrirtækið er með í birgðum vörur ætlaðar inn á Úkraínu.

Eins og sakir standa er of snemmt að draga skýrar ályktanir um möguleg áhrif ástandsins á viðskipti Síldarvinnslunnar í Úkraínu. Að sama skapi, í ljósi þess óvissuástands sem uppi er, er ekki unnt á þessu stigi málsins að leggja mat á möguleg áhrif ástandsins á afkomu félagsins.“

Deila: