Tæp 50 þúsund tonn fryst í Neskaupstað

Deila:

Fjórir starfsmenn starfa við frystigeymslur Síldarvinnslunnar í Neskausptað, að því er fram kemur á vef félagsins. Þar segir að þeir hafi haft í nógu að snúast að undanförnu, enda hafa geymslunar tekið á móti 47.600 tonnum á árinu. Það er meira en allt árið í fyrra.

„Nú eigum við eftir að taka á móti íslensku sumargotssíldinni en veiðar á henni ættu að hefjast fljótlega. Langmest af fiskinum kemur frá fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar en eins höfum við tekið á móti frystum afla frá uppsjávarskipinu Hákoni EA og síðan landar frystitogarinn Blængur NK hjá okkur mánaðarlega. Frystigeymslurnar hér eru hinar stærstu á landinu og rúma á bilinu 18.000 – 20.000 tonn,“ er haft eftir Heimi Ásgeirssyni yfirverkstjóra.

Fram kemur að fiskurinn fari frá þeim með tvennum hætti. Annars vegar fari hann í gámum í skip á Reyðarfirði en hins vegar um borð í skip í Neskaupstað. „Meirihlutinn fer í gámum og yfirleitt fara frá okkur um 30 gámar á viku. Við erum búnir að setja í um 1.000 gáma það sem af er árinu. Staðreyndin er sú að hér er nóg að gera allt árið um kring því hver vertíðin rekur aðra. Það er loðnuvertíð og síðan makrílvertíð og loks síldarvertíðir. Hér hafa menn ekki áhyggjur af verkefnaskorti,“ segir Heimir.

Deila: