Lögðu öldumælidufl við Straumnes

Deila:
Áhöfnin á varðskipinu Freyju lagði út öldumælidufl við Straumnes á dögunum. Frá þessu greinir Landhelgisgæslan á Facebook-vef sínum. Þar segir að vel hafi gengið að koma duflinu á sinn stað.
Fram kemur að þegar verkinu hafi verið lokið hafi heyrst vel í duflinu og að það hafi þegar í stað hafið að senda inn upplýsingar á vef Vegagerðarinnar.
Meðfylgjandi myndband sem Guðmundur St. Valdimarsson tók sýnir hvernig vinna sem þessi fer fram.
Deila: