Aflaverðmæti loðnu 6,3 milljarðar í janúar

Deila:

Aflaverðmæti fyrstu sölu í janúar var 15,7 milljarðar króna samanborið við 10 milljarða í janúar 2021. Verðmæti botnfiskafla nam 9,1 milljarði og verðmæti uppsjávarafla, sem var eingöngu loðna, nam 6,3 milljörðum króna. Á tólf mánaða tímabilinu febrúar 2021 til janúar 2022 var aflaverðmæti tæplega 168 milljarðar en voru tæpir 151 milljarður á sama tímabili ári fyrr. Talnaefni hefur verið uppfært.

Deila: