Óbreytt þorskverð

Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var í gær, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur breytist ekki
Óslægður þorskur breytist ekki
Slægð ýsa lækkar um 5,8%
Óslægð ýsa hækkar um 5,3%
Karfi breytist ekki
Ufsi hækkar um 5,7%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tók gildi 4. maí 2022. Verð á þorski hækkaði um 4% í apríl og um 5% á ýsu.

Deila: