Eimskip kaupir 80% hlut í Mareco í Belgíu

Deila:

Eimskip hefur styrkt stóðu sína í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun með kaupum á 80% hlut í flutningsmiðlunar-fyrirtækinu Mareco N.V. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 og eru höfuðstöðvar þess í Antwerpen í Belgíu. Núverandi stjórnendateymi mun áfram eiga 20% hlut í fyrirtækinu og stýra rekstri þess. Mareco hefur á að skipa 26 starfsmönnum á tveim stöðum, 22 í Antwerpen og fjórum í Sao Paulo í Brasilíu.

Mareco leggur áherslu á frystiflutninga, einkum á útflutning víðs vegar að úr heiminum til Vestur-, Mið- og Suður-Afríku. Helstu vörutegundir eru sjávarafurðir, kjúklingur, svínakjöt og nautakjöt. Ársvelta fyrirtækisins nemur um 60 milljónum evra eða um 7,3 milljörðum króna, EBITDA hlutfall er á bilinu 5-6% og nemur flutt magn um 32 þúsund gámaeiningum á ári.

Áætluð fjárfesting nemur 16,6 milljónum evra eða um 2 milljörðum króna, en endanleg fjárhæð ræðst af rekstrarárangri fyrirtækisins á árinu 2016. Kaupin eru fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Mareco verður hluti af samstæðu Eimskips frá og með byrjun þessa árs.

Í tengslum við fjárfestingarverkefni Eimskips hefur félagið samið við Íslandsbanka um lánalínu til 18 mánaða að fjárhæð 47 milljónir evra. Vegna kaupanna á Mareco hafa 7 milljónir evra verið dregnar á línuna.

Kaupin á Mareco styrkja landfræðilegt þjónustunet Eimskips í frystiflutningum, sérstaklega á svæðum í Afríku og Suður-Ameríku, og eykur fjölbreytni í frosnum afurðum. Þjónustunet Mareco styður við möguleika samstæðunnar á að leita nýrra tækifæra á nýjum markaðssvæðum og styður við frekari þróun á frystiflutningsþjónustu Eimskips.

„Við erum ánægð með að Mareco er nú orðið hluti af samstæðu Eimskips og fyrirtækið mun styrkja frekar frystiflutningsþjónustu okkar með útvíkkun á þjónustuframboði Eimskips, bæði hvað varðar nýja vöruflokka og ný landssvæði. Breytingin mun einnig auka fjölbreytileika okkar og dýrmæt reynsla stjórnenda og starfsmanna Mareco mun hjálpa til við að styrkja okkar alþjóðlegu flutningsmiðlunarþjónustu,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.

„Við höfum þekkt Eimskip í mörg ár og erum mjög ánægð með að verða hluti af samstæðu Eimskips þar sem við teljum að við getum lagt félaginu til mikla þekkingu og reynslu. Fyrirtækin tvö hafa fram til þessa lagt áherslu á ólíka markaði og vörutegundir og við sjáum þess vegna fram á að þau muni hafa hag af reynslu hvors annars þegar sótt er inn á nýja markaði,“ segir Koen Jansen, framkvæmdastjóri Mareco

 

 

 

Deila: