Aðalfundur SVN 9. júní

Deila:

Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn föstudaginn 9. júní nk. á Hótel Hildibrand í Neskaupstað og hefst kl. 11.00
Á dagskrá fundarins er skýrsla stjórnar. Endurskoðaðir reikningar verða lagðir fram til staðfestingar og tekin ákvörðun um greiðslu arðs.
Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu verður kynnt 0g lögð fyrir fundinn og
ákvörðun tekin um þóknun stjórnar félagsins.
Stjórn félagsins verður kjörin, endurskoðendur kjörnir og fjallað um önnur mál, löglega fram borin.

 

Deila: