Metpantanir hjá Marel

Deila:

Samkvæmt óendurskoðuðu bráðabirgðauppgjöri Marel fyrir annan ársfjórðung 2022 voru metpantanir að upphæð 472 milljónir evra (2F21: 371m) og tekjur námu 397 milljónum evra (2F21: 328m). Kaupin á Wenger skiluðu pöntunum sem nema 17 milljónum evra og tekjum sem nema 12 milljónum evra í fjórðungnum. Pantanabókin er einnig sterk og nam 775 milljónum evra (mars ´22: 619m og júní ´21: 499m), að meðtaldri pantanabók frá Wenger og Sleegers að upphæð 81 milljón evra.

Rekstrarniðurstaða fjórðungsins er undir væntingum með 6,3% EBIT framlegð (2F21: 11,8%). Kaupin á Wenger höfðu jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna. Í ljósi áframhaldandi áskorana tengdum aðfangakeðju og hárrar verðbólgu sem leiddi til hægari tekjuvaxtar en vænt var, mun Marel grípa til aðgerða þegar í stað til að bæta rekstrarafkomu og styðja við fjárhagsleg markmið sín fyrir árslok 2023.

„Til að lækka kostnað hefur sú erfiða ákvörðun verið tekin að fækka starfsmönnum félagsins um 5% á heimsvísu. Áætlað er að þessar breytingar muni skila sér í lækkun á kostnaðargrunni sem nemur 20 milljónum evra á ársgrundvelli, en einskiptiskostnaður nemur um 10 milljónum evra. Sterk staða pantanabókar og virk verðstýring á vörum Marel munu styðja við stighækkandi tekjuvöxt og bætta rekstrarafkomu á síðari helmingi ársins, eins og fram kom í afkomutilkynningu vegna 1F 2022.

Pípan af nýjum verkefnum er áfram sterk og drifin áfram af nýsköpun og aukinni markaðssókn um heim allan til að mæta væntum vexti. Eftirspurn í alifugla- og fiskiðnuðum er sterk, en veikari í kjötiðnaði sem mun hafa áhrif á samsetningu tekna. Í núverandi umhverfi verðbólgu, skorts á vinnuafli og breytilegri neytendahegðun er Marel í einstakri stöðu til að styðja við matvælaiðnaðinn með hátækni- og hugbúnaðarlausnum sem leiða til meiri sjálfvirkni, öryggis og rekjanleika,“ segir meðal annars í frétt frá Marel.

Bráðabirgðauppgjörið er óendurskoðað og kann að taka breytingum. Marel mun birta afkomu fyrir annan ársfjórðung á bæði NASDAQ Iceland og Euronext Amsterdam samkvæmt fjárhagsdagatali sínu þann 27. júlí 2022.

*Rekstrarniðurstaða aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtökum (PPA) og fyrir kostnaði tengdum yfirtökum.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum 28. júlí kl. 8:30

Fimmtudaginn 28. júlí 2022 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn. Nánari upplýsingar um afkomufundinn verða birtar síðar í vikunni.

 

Deila: