Landeldi á laxi eykst

Nokkur aukning varð á framleiðslu á laxi í landeldi á milli áranna 2019 og 2020, eða rúm 26%, en þar hefur framleiðslan staðið nokkuð í stað á undanförnum árum.
Nam framleiðslan á laxi úr landeldi um 2,1 þúsund tonnum á árinu 2020, sem er rétt um 6% af heildarframleiðslu á eldislaxi.
Það hlutfall hefur farið stöðugt minnkandi á undanförnum árum og er ástæðan meðal annars sú að framleiðslukostnaðurinn við landeldi er margfaldur á við kostnað við framleiðsluna úr sjókvíeldi. Þar fyrir utan er kostnaður vegna fjárfestinga í landeldi margfalt hærri.
Jafnframt hafa rannsóknir sýnt að kolefnisfótspor vegna lax sem alinn er á landi er hærri en í sjókví. Sá mismunur stafar af mörgum þáttum, svo sem meiri orkunotkun, landnotkun, endingartíma eldisstöðvar svo fátt eitt sé nefnt.
Frétt af bb.is