Ufsinn lætur lítið á sér kræla

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði seinni hluta síðustu viki. Aflinn var um 90 tonn, mest karfi en einnig bland af þorski, ýsu og ufsa. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að veitt hafi verið í Berufjarðarálnum og á Papagrunni.

„Það er nóg af þorski og ýsu á þessum miðum og einnig er sæmilegt kropp í karfa, en því miður lætur ufsinn lítið á sér kræla. Það er víða leitað að ufsa og yfirleitt með takmörkuðum árangri,“ segir Þórhallur í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Gullver er aftur farinn til veiða, en síðan er stefnt að því að landa á miðvikudag. Þá verður stoppað yfir verslunarmannahelgina.
Gullver NS á siglingu í Berufjarðarálnum. Ljósm. Þorgeir Baldursson

 

 

Deila: