Kvíði nýju fiskveiðiári

Deila:

,,Ég verð að segja alveg eins og er. Ég kvíði nýju fiskveiðiári. Það er alls staðar mikið af gullkarfa, ýsu og þorski. Í stað þess að auka við er kvótinn skertur og það stefnir í stórkostleg vandræði þegar kemur fram á næsta vor,” segir Árni Gunnólfsson, skipstjóri á frystitogaranum Vigra RE í samtali á heimasíðu Brims. Togarinn kom til hafnar í Reykjavík um helgina eftir tæplega mánaðarlanga veiðiferð.

,,Við erum með fullfermi og aflabrögðin hafa verið ágæt. Við höfum leitað að ufsa með logandi ljósi og þótt hann sé vandfundinn þá er um fjórðungur aflans ufsi,” segir Árni en samkvæmt upplýsingum hans hófst leitin að ufsanum á SA-miðum.

,,Þarna er ekkert um togara og það tók okkur ekki langan tíma að komast að því; hvers vegna? Það er allt krökkt af ýsu fyrir austan og reyndar við alla suðurströndina. Við fórum því á Vestfjarðamið til að leita af ufsa á Halanum. Þar var aðallega karfi og einnig ýsa en við fengum þó dálítið af ufsa,” segir Árni.

Næst tók við leit að ufsa á Fjöllunum úti af Reykjanesi.

,,Alls staðar var nóg af fiski, jafnt fyrir norðan sem sunnan, en gallinn var bara sá að það var of lítið af því sem við leituðum að. Við fengum samt tvo þokkalega daga með ufsaveiði á Fjöllunum en annars var bara karfi og ýsa í boði. Við enduðum svo í Skerjadjúpi og á Matthildi og þar var aflinn djúpkarfi og gulllax.”

Árni segir furðulegt að upplifa hvernig stofn eins og ýsan hefur vaxið og dafnað á aðeins nokkrum árum.

,,Það eru ekki mörg ár síðan menn biðu spenntir á línunni eftir að ýsuhólfið fyrir norðan væri opnað fyrir veiðum. Þar sést ekki skip í dag og menn sneiða hjá ýsuhólfum fyrri tíma sem og ýsunni sem er alls staðar,” segir Árni Gunnólfsson.

 

Deila: