Aflaverðmæti um 100 milljarðar á fyrri hluta ársins og jókst um 27%

Deila:

Verðmæti afla við fyrstu sölu nam rúmum 100 milljörðum króna á fyrri hluta ársins 2022 sem er 27% aukning samanborið við sama tímabil 2021 þegar aflaverðmæti var tæplega 79 milljarðar. Verðmæti botnfiskafla var um 70 milljarðar, uppsjávarafla um 25 milljarðar og flatfiskafla um 5 milljarðar.

Landað aflamagn á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2022 var 852 þúsund tonn sem er 67% aukning frá sama tímabili árið 2021. Afli uppsjávartegunda var 603 þúsund tonn á fyrri hluta ársins sem er 163% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Botnfiskafli var 236 þúsund tonn á fyrstu 6 mánuðum ársins og dróst saman um 11% samanborið við fyrra ár.

 

 

Deila: