Grjót flutt út í Grímsey

Deila:

Áhöfnin á varðskipinu Þór flutti í vikunni 16 bretti af grjótskífum í land á Grímsey. Alls er um 11 tonn af grjóti að ræða sem notað verður vegna byggingar á nýrri kirkju í eynni.
Þegar varðskipið var við eyjuna á þriðjudagsmorgun, var svarta þoka og lítið skyggni en þrátt fyrir það gekk vel að ferja brettin í land.
Þau voru hífð um borð í léttbát Þórs og siglt með þau í Grímseyjarhöfn þar sem byggingaraðilar tóku við þeim. Fyrr í sumar flutti áhöfn Þórs byggingarefni í eyjuna en þá flutti skipið sex tonn af timbri og grjót í Grímsey.
„Okkur þykir ánægjulegt að geta aðstoðað við framkvæmdir á nyrsta kirkjubóli landsins þegar varðskipin eru við eftirlit á svæðinu,“ segir í frétt á heimasíðu gæslunnar.

Deila: