Íslandsmet í strandveiðum

Deila:

Landssamband smábátaeigenda heiðraði Vigfús Vigfússon sjómann á Dögg SF í tilefni að opnun sýningarinnar sjávarútvegur 2022.  Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra afhenti dóttur Vigfúsar viðurkenninguna, en  Vigfús var fjarverandi. Viðurkenningunni var fylgt úr hlaði með eftirfarandi orðum:

„Vigfús hefur gert út frá Höfn frá árinu 1994, róið á sínum eigin bát, sem ætíð hefur verið í flokki smábáta. Veiðikerfið sem Vigfús byrjaði í var banndagakerfið. Þá tók við kerfi sem kennt var við þorskaflahámark. Upp úr aldamótum varð til krókaaflamarkskerfi, en samhliða réri Vigfús í sóknardagakerfi þar til það var aflagt 2005. Frá þeim tíma hefur hann róið í krókaaflamarki og gert út á línu.

Vigfús er þekktur fyrir að róa stíft og vera fylginn sér þótt rólegheitin við fiskveiðar sé honum eðlislæg. Það þýðir ekkert að vera með neinn æsing, eins og Vigfús orðar það. Það er til marks um hvað Vigfúsi hefur gengið vel með þann gula, að dæmi eru um af aflamenn hafi stolist um borð í bát hans í skjóli nætur til rannsaka veiðarfærin í þeirri von að geta nýtt sér leyndarmálið. Ekkert var þar hins vegar að sjá. Þetta er honum í blóð borið. Hann er galdramaður eins og þeir orðuðu þetta.

Nú hefur Vigfús söðlað um. Hann er hættur að gera út á línu og byrjaður á strandveiðum. Þar fer saman hjá honum atvinna og áhugamál. Hann sagðist hafa ætlað að taka því rólega, en það er nú bara svo, að þegar maður horfir á vini sína sigla út Ósinn, þá fer maður á eftir þeim.

Vigfús var langaflahæstur á strandveiðum sumarsins með 69,4 tonn í 33 sjóferðum. 23 tonn af þorski og 46 tonn af ufsa. Íslandsmet í strandveiðum.“

 

Deila: