Fiskistofa undirbýr nýja vefsíðu

Deila:

Fiskistofa hefur á undanförnu verið að undirbúa nýja vefsíðu í samvinnu við Stafrænt Ísland. Efni nýs vefs er skrifað með notandann í huga og útfrá þeim þjónustum sem Fiskistofa veitir. Enn er verið að vinna í vefsíðunni en frá og með 1. nóvember nk. munu notendur vera færðir sjálfkrafa inn á nýja vef Fiskistofu í þeim tilvikum sem efni hefur verið birt á því svæði.

Hægt er að skoða það sem komið er í birtingu á nýja vefnum hér . Gagnahluti vefsins er enn í vinnslu og hefur sá hluti ekki verið birtur

Stefnt er að því að nýr vefur verði tilbúinn 1. desember nk.

Deila: