Rekstrarleyfi Rifóss endurnýjað

Deila:

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Rifós hf. við Lónin í Kelduhverfi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 10. október 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 31. október 2022.

Rifós hf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 600 tonna hámarkslífmassa til seiðaeldis á laxi. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 13. maí 2022. Matvælastofnun staðfestir gildistöku rekstrarleyfis Rifós hf. við Lónin í Kelduhverfi FE-1189 en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

Deila: