Auglýst eftir umsóknum vegna sjóstangaveiðimóta

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um vilyrði fyrir aflaskráningu vegna opinberra sjóstangaveiðimóta sem áætlað er að halda á fiskveiðiárinu 2022/2023, samanber reglugerð um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk. og skulu umsóknir ásamt fylgigögnum berast í tölvupósti á netfang Fiskistofu.

Athygli er vakin á að umsókn telst því aðeins móttekin að sjálfvirk staðfesting Fiskistofu á móttökunni berist sendandanum.

Með umsókn skulu fylgja samþykktir félagsins og upplýsingar um reglur um félagsaðild.

 

Deila: