Skipverjinn sem leitað er að heitir Ekasit Thasaphong

Deila:

Skipverjinn á Sighvati GK-57 í Grindavík sem leitað hefur verið að frá því á laugardag heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980. Hann býr í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum. Frá þessu er greint á visir.is

Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, greinir frá nafni skipverjans í tilkynningu en tilkynningin var send í samráði við fjölskylduna.

Ekasit kom til landsins ungur og hefur lengst af starfað hjá Vísi hf., bæði til sjós og lands. Fjölskylda hans er öll mjög virk í samfélaginu í Grindavík að sögn Péturs og tekur hann undir með bæjarstjóranum um að allt samfélagið sé harmi slegið vegna málsins.

Fjölskyldan þakkar samúð og vinarþel samfélagsins af alhug. Starfsfólk Vísis þakkar sömuleiðis öllum þeim sem hafa tekið þátt í leitinni og eru bænir allra hjá fjölskyldu og ættingjum Ekasit.

 

Deila: