Hoffell SU fær MLD toghlera

Deila:

Nú um jólin og áramótin hefur uppsjávarskip Loðnuvinnslunnar, Hoffell SU-80, verið í upptökudokkinni hjá Slippstöðinni á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum Loðnuvinnslunnar var kominn tími til að ditta að einu og öðru eins og gengur á skipi sem mikið er notað og þótti eðlilega tilvalið að nota tíma þegar áhöfnin tekur sér frí til þess að njóta hátíðarinnar með sínu fólki.

Hoffellið í kvínni hjá Slippnum Akureyri. Mynd: Kjartan Reynisson

MLD toghlerar eins og Hoffellið tekur nú í notkun.

„Auk almenns viðhalds á skipinu er verið að taka fyrsta skrefið í að koma fyrir enn einni tækninýjunginni. Um er að ræða svo kallaða MLD toghlera (Trawl steering system) frá dönskum framleiðanda. Þetta eru stýranlegir toghlerar fyrir flottroll sem stjórna má úr brúnni með tölvu. Virka þessir toghlerar með þeim hætti að hægt er að stilla opnunina á trollinu í sjónum með aðgerð í tölvu. Í hlerunum eru lokur sem minna á flapsa á flugvélavæng sem hægt er að hreyfa og þannig stilla hversu mikið eða lítið opið er. Skrefið sem stigið er í slippnum að þessu sinni er að koma fyrir botns stykki undir skipinu sem gegnir hlutverki sendis og móttakara. Frá þessu stykki þarf svo að koma stjórnköplum í brúnna og hleðsluköplum aftur í skut því allt gengur þetta fyrir rafmagni. Þegar þetta verður allt klárt verður hægt að koma toghlerunum sjálfum fyrir og verður það væntanlega gert strax á nýju ári.
Tæknifólk segir að stýranlegir toghlerar séu framtíðin í flottrollsveiðum, þeir minnki slit á skipum og veiðarfærum auk þess sem möguleiki skapast til þess að auka afköst og spara eldsneyti á sama tíma. Og það er árangur sem allir ættu að vera sáttir við,“ segir í frétt Loðnuvinnslunnar.

Deila: