Þrjú teymi sækjast eftir farþegamiðstöð á Skarfabakka

Deila:
Þrjár umsóknir bárust um nýja farþegamiðstöð á Skarfabakka í Sundahöfn en efnt var til samstarfssamkeppni um alverktöku vegna hönnunar og byggingar fjölnota miðstöðvar.
Þau samstarfsteymi sem skiluðu inn umsóknum voru:
1. ÍAV, VSÓ Ráðgjöf ehf og Brokkr studio
2. Ístak hf., THG arkitektar, Exa nordic, Teknik, Lota, Brekke&Strand, Örugg, Landslag
3. E. Sigurðsson ehf., Arkþing-Nordic, Efla
Ný nálgun í framkvæmaverkefni
Í frétt frá Faxaflóahöfnum segir að búið sé að fara yfir umsóknirnar og hafi þær allar staðist kröfur sem gerðar hafi verið til þátttakenda í samkepnninni.
„Samstarfssamkeppni um alverktöku vegna hönnunar og byggingar á fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka er ný nálgun á slíkri samkeppni á Íslandi. Þess vegna er ánægjulegt að sjá að svona öflug og fagleg teymi hafi sótt um þátttöku í samstarfssamkeppninni,“ segir Inga Rut Hjaltadóttir sviðsstjóri framkvæmdasviðs.
Deila: