Þrjú ný svæði friðuð fyrir botnveiðum

Deila:

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur staðfest reglugerð um verndarráðstafanir vegna viðkvæmra hafsvæða og botnvistkerfa. Þetta kemur fram á vef Matvælasráðuneytisins. Með reglugerðinni eru þrjú ný svæði skilgreind þar sem botnveiðar verða óheimilar. Að auki hafa verið færð inn í sömu reglugerð svæði sem áður voru í reglugerð um friðunarsvæði við Ísland. Allar veiðar nema handfæraveiðar og veiðar á uppsjávarfiski með flotvörpu og hringnót verða framvegis óheimilar á þessum svæðum. Við gildistöku þessarar reglugerðar verða allar botnveiðar bannaðar samtals á sautján svæðum í fiskveiðilandhelgi Íslands, en svæðin taka til tæplega 2% af fiskveiðilandhelginni.

„Verndun líffræðilegrar fjölbreytni er ein stærsta áskorun samtímans. Verndun vistkerfa hafsins er þar mikilvægur þáttur. Markmið alþjóðasamfélagsins eru háleit, stefnt er að verndun um 30% hafsvæða heimsins. Við þurfum að gera betur í þessum málaflokki og þetta er mikilvægt skref í þá átt,“ er haft eftir Svandísi á vefnum.

Deila: