Ríkið hafði betur í máli um byggðakvóta

Deila:

Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að málefnaleg sjónarmið hafi legið að baki ákvörðun Byggðastofnunar um að hafna umsókn Oturs ehf. og Sigluness hf. um byggðakvóta og ganga til samstarfs við aðra umsækjendur um kvótann.

Þetta kemur fram á vef Byggðastofnunar en dómurinn féll síðastliðinn föstudag. Málið var höfðað gegn íslenska ríkinu vegna úthlutunar aflamarks Byggðastofnunar á Þingeyri árið 2018.

Ákvörðun Byggðastofnunar er sögð hafa byggð á þeim sjónarmiðum sem fram koma í 10.gr. laga um stjórn fiskveiða (um Aflamark Byggðastofnunar) en þar er horft til verndunar brothættra sjávarbyggða svo notað sé orðalag Landsréttar.

„Einnig var því hafnað að stofnunin hefði brotið gegn 10., 11. og 12. gr. stjórnsýslulaga. Þ.e. rannsóknarreglunni, jafnræðisreglunni og meðalhófsreglunni,“ segir á vefnum.

Dómurinn í heild

Deila: