Misjafnt íshlutfall
Fiskistofa birtir nú niðurstöður vigtana með tilliti til íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum þar sem veiðieftirlitsmenn Fiskistofu hafa viðhaft eftirlit með endurvigtun á tímabilinu 1. mars til 30. apríl 2018.
Taflan hér að neðan sýnir samanburð á vegnu meðalíshlutfalli hvers vigtunarleyfishafa og íshlutfallinu þegar eftirlit var haft með vigtuninni.
- Vegið meðalíshlutfall er íshlutfall vigtunar þegar tekið er tillit til heildarmagns sem vigtað er í öllum vigtunum frá tilteknu skipi hjá viðkomandi leyfishafa.
- Þessi tala er borin saman við íshlutfallið þegar eftirlitsmaður er viðstaddur endurvigtun og mismunurinn í prósentustigum er birtur.
Taflan sýnir einnig heildarafla sem viðkomandi skip landaði hjá vigtunarleyfishafanum á tímabilinu.
Ástæður breytilegs íshlutfalls geta verið margvíslegar. Það er hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að vigtun á sjávarafla sé sem réttust. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir Fiskistofa margvíslegum aðferðum og má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og vinnslur, áhættugreiningu og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar og afla.