Snjóflóðahættan tefur loðnuvinnslu

Deila:

Snjóflóðahættan sem skapast hefur á Austfjörðum hefur tafið lok loðnuvinnslunnar hjá fiskimjölsverksmiðjum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að verksmiðjurnar hafi báðar verið rýmdar í gærmorgun og að þá hafi 900 tonn verið óunnin í Neskaupsstað og um 1.000 tonn á Seyðisfirði.

Loðnan sem átti eftir að vinna var úr Polar Ammassak og Vilhelm Þorsteinssyni, sem landaði 1.200 tonnum á sunndag.

Eftir að ákveðið var að rýma voru báðar verskmiðjurnar keyrðar niður með lágmarksstarfsmannafjölda í samráði við Veðurstofu Íslands. Fram kemur enn fremur að allri vinnslu hafi veirð lokið í fiskiðjuverinu í Neskaupsstað áður en snjóflóðahættan skapaðist. Ómar Bogason, rekstrarstjóri frystihúss Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði, upplýsir að ákveðið hafi verið að afboða starfsfólk frystihússins í gærmorgun áður en tilkynning um rýmingu barst. „Vegna ófærðar og aðstæðna var ákveðið að vinna ekki þennan dag en síðan kom fljótlega tilkynning um rýmingu. Nú í dag kom Gullver NS úr veiðiferð með 85 tonn af blönduðum afla. Sá fiskur verður sendur annað til vinnslu og það mun ganga vel því Fjarðarheiði er orðin fær,“ er haft eftir Ómari.

Flestir virðast gera ráð fyrir því að rýmingar muni verða í gildi bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði fram að helgi þannig að loðnan í tönkum fiskimjölsverksmiðjunna mun þurfa að bíða vinnslu enn um sinn.

Myndin er af vef RÚV

Deila: