Þverfaglegt og ókeypis námskeið á meistarastigi

Deila:
ostrur

Í nýju netnámskeiði sem UiT Norges arktiske universitet býður upp á er farið um víðan völl tengt eldi á lægri stigum fæðukeðjunnar, svo sem eldi á ostrum, kræklingum og sæeyrum. Frá þessu er greint á vef Matís. Um er að ræða ókeypis námskeið á meistarastigi.

Fjallað er um líf- og vistfræði helstu tegunda, umhverfisáhrif, sjálfbærni, hagfræði og fleira. Nemendur með ólíka þekkingu og reynslu ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Námskeiðið byggir á stuttum fyrirlestrum á formi myndbanda, verkefnum og lesefni. Ljúki nemendur námskeiðinu geta þeir fengið skírteini þess efnis frá UiT.

Fram kemur að námskeiðið var búið til sem hluti af AquaVitae verkefninu, en það er Evrópuverkefni, styrkt af Horizon 2020 (Grant Agreement No 818173) áætlun Evrópusambandsins, með það að markmiði að auka vægi eldis á lægri stigum. Matís er hluti af bæði verkefninu og þróunarteymi námskeiðsins.

Deila: