Fundu 15 ára stúlku í káetu skips á Faxaflóamiðum

Deila:

Lögreglan í Vestmannaeyjum fann í gær 15 ára stúlku í káetu um borð í fiskiskipi á Faxaflóamiðum. Tíu manns eru í áhöfn skipsins en RÚV greinir frá því að þeim hafi ekki verið kunnugt um veru stúlkunnar í klefa mannsins. Stúlkunnar hafði verið saknað en vitað var að hún fór með Herjólfi til Vestmannaeyja um helgina, þaðan sem skipið lagði úr höfn.

Skipverjinn er 24 ára gamall og dæmdur ofbeldismaður og hafa ofbeldisverk hans ítrekað ratað í fjölmiðla. Báturinn kom til hafnar í Grindavík klukkan 14 í gær, sunnudag, þar sem maðurinn var færður til skýrslutöku.

Deila: