„Hann virðist vera að flýta sér heim blessaður“

Deila:

Ekkert lát er á góðri kolmunaveiði í færeyskri lögsögu, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Fiskimjölsverksmiðjur fyrirtækisins í Neskaupstað og á Seyðisfirði hafa meira en nóg hráefni. Vinnslan gengur að sögn vel.

Fram kemur að Beitir NK og Hákon EA hafi um helgina landað fullfermi á Seyðisfirði og Vilhelm Þorsteinsson í Neskaupstað. Barði NK hafi svo komið með fullfermi til Neskaupstaðar í gær, sunnudag.

Rætt er við Runólf Runólfsson, skipstjóra á Barða, á heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Aflinn fékkst í sex holum og var stutt dregið eða allt niður í tvo tíma. Minnsta holið gaf 200 tonn en hið stærsta 480 tonn. Veitt var vestan við Færeyjar í Ræsinu svonefnda en það er norðan við Færeyjabanka. Þarna er talsvert af fiski á ferðinni og hann virðist vera á stóru svæði, en samt finnst mér ég stundum hafa séð meira. Það er mikill straumur á þessum slóðum og öflugustu skipin ráða best við aðstæðurnar og fiska mest. Kolmunninn er kominn óvenju norðarlega miðað við árstíma og hann fer vestan við eyjarnar sem er gott. Hann ætti að vera kominn í íslenska lögsögu í maí og þá verður án efa hörkuveiði í Rósagarðinum. Hann virðist vera að flýta sér heim blessaður. Við komum til Neskaupstaðar um miðjan dag í gær en munum ekki landa fyrr en í kvöld. Það er miklu betra að geyma hráefnið kælt í skipinu en í tönkum verksmiðjunnar. Mér líst bara vel á framhaldið á kolmunnaveiðinni og það verður auðvitað miklu þægilegra í alla staði að veiða hann í íslenskri lögsögu þegar þar að kemur,“ er haft eftir honum.

Í fréttinni segir enn fremur að Börkur NK og Margrét EA séu á landleið með fullfermi. Áformað er að Börkur landi á Seyðisfirði og Margrét í Neskaupstað.

Deila: