Ýsa á Undirbyrðahrygg

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði á mánudaginn að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn var um 80 tonn, mest þorskur og ýsa.

Steinþór Hálfdanarson skipstjóri segir að aflast hafi vel í veiðiferðinni. „Við byrjuðum veiðar á Undirbyrðahrygg og þar fékkst ýsa. Nafnið á hryggnum er skemmtilegt en það er þannig til komið að Birgir Sigurðsson á Barða NK, fyrsta skuttogara okkar Íslendinga, veiddi þarna mikið. Einu sinni rifum við sex undirbyrði á einum átta tímum þarna á Barðanum og þá var nafnið komið og festist snarlega. Undirbyrðahryggur er nyrst á Papagrunni sunnan við Berufjarðarálsbotn. Frá Undirbyrðahrygg lá leiðin út á Barð við Berufjarðarálinn og síðan í Hvalbakshall. Þar fengum við þorsk. Það var gott veður í túrnum, suðvestan golukaldi. Fiskurinn sem þarna veiddist var hinn fínasti,“ er haft eftir honum Steinþór.

Fram kemur að í frystihúsinu á Seyðisfirði sé verið að vinna ýsuhnakka þessa dagana og þar gangi allt sinn vanagang.

Gullver hélt á ný til veiða í gær.

Deila: