Ísland hlaut kjör í stjórn IOC

Deila:

Ísland hlaut í vikunni kjör til setu í framkvæmdastjórn alþjóðahaffræðinefndar Menningarmálastofnunar Sameinuðu Þjóðanna (IOC, Intergovernmental Oceanographic Commission of UNESCO) fyrir tímabilið 2023-2025. Þetta kemur fram á vef Hafró en kosningarnar fóru fram á aðalfundi í höfuðstöðvum UNESCO í París. Þetat er í fyrsta sinn sem Ísland gegnir þessu hlutverki.

Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri á umhverfissviði Hafrannsóknastofnunnar, mun taka þátt í störfum nefndarinnar fyrir hönd Íslands.  Aðildarríki alþjóðahaffræðinefndarinnar IOC-UNESCO eru 150 talsins og eiga fjörutíu ríki sæti í framkvæmdastjórn.

„Starfsemi alþjóðahaffræðinefndarinnar byggir á alþjóðasamstarfi á sviði hafvísinda. Alþjóðahaffræðinefndin er meðal annars í forystu fyrir Áratug hafsins (Ocean Decade) á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Eitt af hlutverkum nefndarinnar er að fjalla um og móta stefnu um hvernig taka skuli á stórum áskorunum tengdum loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og líffræðilegri fjölbreytni í hafi. Nefndin leggur áherslu á hafrannsóknir, gögn og nýtingu þeirra í víðum skilningi. Þróunarsamvinna er einnig mikilvægur hluti af starfsemi IOC.” segir á vef Hafró.

 

Deila: