Grásleppuveiðileyfi enn framlengd

Deila:
Birt hefur verið í Stjórnartíðindum breyting á reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2023. Breytingin kveður á um að heimilt verði að stunda veiðar í innanverðum Breiðafirði til og með 31. ágúst. Fram kemur á vef LS að áður hafi þrjár breytingar verið gerðar á upphaflegri reglugerð.  Dögum hafi verið fjölgað úr 25 í 35 og síðar 45. Jafnframt hafi veiðitímabilið verið lengt. Í stað þess að lokadagur væri 30. júní var ákveðið að hann verði 12. ágúst á öllum svæðum.
Fram kemur að grásleppubátar hafi nú veitt 3.610 tonn en á sama tíma í fyrra hafi 4.121 tonn verið veitt. Þá áætlar LS að verð hafi hækkað um 40% frá því í fyrra.
Tólf bátar eru enn á grásleppuveiðum.
Deila: